Froskaleikur 2 - Listin að lesa Brazil L +4

Raddlist

Desenvolvido para iPad

    • Grátis

Capturas de tela

Descrição

NÆSTU HLJÓÐ sem flest börn tileinka sér í framhaldi af fyrstu hljóðunum í máltökunni eru æfð í Froskaleik 2 sem er annar í röðinni af þriggja leikja seríu. Í þessum leik hjálpa börnin froskinum Hoppa að finna töfrasprotann og leysa skemmtilegar þrautir á leiðinni í töfrakastalann. Þau komst nær og nær kastalanum í þessum leik sem er annar froskaleikurinn af þremur. Í skemmtilegum æfingum halda börnin áfram að æfa fleiri málhljóð í íslensku: /p, t, v, f, j, g, k/. Sólin í hverju borði gefur greinargóðar upplýsingar um hvað á að gera hverju sinni.

UM ALLA LEIKINA 1 2 3
Froskaleikirnir segja frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í þremur mismunandi sjálfstæðum hljóðgreiningarleikjum fyrir barnafjölskyldur þarf Hoppi að leysa ýmsar þrautir til að komast í kastalann sem geymir lausnina að því að hann nái málinu aftur. Börnin æfa íslensku málhljóðin í erfiðleikaröð þeirra, frá fyrsta í gegnum þriðja froskaleikinn með æfingum í hljóðavitund, hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. Allt eru þetta mjög mikilvægir þættir í hljóðkerfisvitund og nefnuhraða til undirbúnings læsi og lesfimi.

Höfundur smáforritsins er talmeinafræðingur með margra ára reynslu í starfi á Íslandi. Efnistök smáforritsins byggja á rannsóknum um hvaða grunnfærni einstaklingur þarf að hafa til að læra að lesa; m.a. ákveðnum þáttum í hljóðkerfisvitund og úrvinnslu, vitund um letur, gott talmál og að kalla fram hljóðrænar upplýsingar í orðaminni þegar þekkja á skrifuð orð. Allir þessir þættir stuðla að lestrarnákvæmni og lestraröryggi sem er forsenda sjálfvirkni í lestri.

Þá er góður málskilningur og orðaforði undirstaða fyrir góðan lesskilning og í smáforritinu eru hundruð orða kennd með íslenskum teikningum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánssonar auk þess sem öll orð eru talsett af Védísi Hervöru Árnadóttur og Felix Bergssyni.

Forritið er fyrir börn frá 4 – 5 ára aldri og hentar langt fram á grunnskólaaldur, eftir eðli mála. Forritið gefur möguleika á að velja léttari æfingar fyrir byrjendur.
Engar auglýsingar. Foreldravörn.


Mikilvægar ábendingar frá Hoppa:
Smellið á blikkandi sjónvarp efst uppi til hægri til að heyra söguna í upphafi.

Í fyrstu umferð þarf nemandi að klára öll borðin í hverju hljóði og fá 4 stjörnur. Annars hoppar Hoppi ekki áfram. Svo æfir barnið hljóðin í röð. Þannig opnast á öll hljóðin síðar og nemandi getur valið hljóð af handahófi. Markmiðið er að þjálfa ákveðin hljóð fyrst og gera þetta með stigvaxandi þyngd. Svo má leika sér að vild.

Málhljóðin í Froskaleiknum eru æfð í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á:

1) Hljóðavitund. Kynning á bókstaf, hljóði og fingrastafrófi. Þá er fyrirmynd fyrir hljóðið kynnt með vísan í heyrn- og sjónrænt minni með lítilli sögu fyrir hvert hljóð

2) Hljóðatenging og umskráning: lítill/stór stafur. Bókstafur tengdur við hljóðið sem sýnt er með vísan í táknmynd þess. Umskráning er æfð sem mikilvæg er til undirbúnings lestrarferlinu. Stjörnugjöf og stika sem sýnir hvar þú ert kominn

3) Hljóðgreining. Hljóð tengt við mynd þar sem tengja þarf rétt hljóð við rétt orð. Stjörnugjöf og stika sem sýnir þér hvar þú ert kominn

4) Hljóðgreining og skrifað orð, nefnuhraði > að þekkja skrifað orð og kalla fram úr orðasafni hljóðrænar upplýsingar. Barnið smellir á skrifuðu orðin til að heyra heiti þeirra, hlustar vel á orðin og velur rétta hljóðamynd fyrir hljóðið. Smám saman tileinkar barnið sér ákveðna sjálfvirkni í að lesa ritháttarmyndina fyrir orðið og tengir við hljóðkerfisvitundina

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:
Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka.

Styrkir vegna þróunar Froskaleikja Hoppa: Þróunarsjóður námsgagna, Barnavinafélagið Sumargjöf og Barnamenningarsjóður

Novidades

Versão 2.0

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

iOS 10 update

Privacidade do app

O desenvolvedor, Raddlist, não forneceu detalhes sobre suas práticas de privacidade e gerenciamento de dados à Apple. Para mais informações, consulte sua política de privacidade.

Nenhum detalhe fornecido

Os reponsáveis pelo desenvolvimento serão requisitados a fornecer detalhes de privacidade ao enviar a próxima atualização do app.

Mais deste desenvolvedor

Froskaleikur 3
Educação
Lærum og leikum með hljóðin - Allt efnið
Educação
Kids Sound Lab Pro
Educação
Lærum og leikum með hljóðin -D
Educação
Froskaleikur 1 - Listin að lesa
Educação
FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
Educação

Você também pode curtir

Kennsluappið
Educação
Georg og leikirnir
Educação
Georg og félagar
Educação
Stafarugl Snjallkennslu
Educação
Reiknum hraðar
Educação
Karellen
Educação