Froskaleikur 3 4+

Raddlist

iPad용으로 디자인됨

    • 무료

스크린샷

설명

SÍÐUSTU HLJÓÐIN í máltökunni eru æfð í Froskaleik 3 sem er þriðji í röðinni um Hoppa frosk. Hér hjálpa börnin Hoppa að finna lykillinn að galdrakastalanum. Þetta er síðasta þrautin sem þarf að leysa til að komast inn í kastalann. Þar þarf að útbúa galdraseyðið sem Hoppi drekkur svo hann fái málið aftur. Í skemmtilegum æfingum er farið í gegnum síðustu hljóðin sem börn tileinka sér í máltökunni í íslensku: /ng, ð, þ, s, mjúka g, hn/. Bókstafir málhljóðanna sem ekki eru sögð fremst í orðum eru merktir sérstaklega þar sem þeir koma fyrir í orðum. Sólin í hverju borði gefur greinargóðar upplýsingar um hvað á að gera hverju sinni.

UM ALLA LEIKINA 1 2 3
Froskaleikirnir segja frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í þremur mismunandi sjálfstæðum hljóðgreiningarleikjum fyrir barnafjölskyldur þarf Hoppi að leysa ýmsar þrautir til að komast í kastalann sem geymir lausnina að því að hann nái málinu aftur. Börnin æfa íslensku málhljóðin í erfiðleikaröð þeirra, frá fyrsta í gegnum þriðja froskaleikinn, með æfingum í hljóðavitund, hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. Allt eru þetta mjög mikilvægir þættir í hljóðkerfisvitund og nefnuhraða til undirbúnings læsi og lesfimi.

Höfundur smáforritsins er talmeinafræðingur með margra ára reynslu í starfi á Íslandi. Efnistök smáforritsins byggja á rannsóknum um hvaða grunnfærni einstaklingur þarf að hafa til að læra að lesa; m.a. ákveðnum þáttum í hljóðkerfisvitund og úrvinnslu, vitund um letur, gott talmál og að kalla fram hljóðrænar upplýsingar í orðaminni þegar þekkja á skrifuð orð. Allir þessir þættir stuðla að lestrarnákvæmni og lestraröryggi sem er forsenda sjálfvirkni í lestri.
Þá er góður málskilningur og orðaforði undirstaða fyrir góðan lesskilning og í smáforritinu eru hundruð orða kennd með íslenskum teikningum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánssonar auk þess sem öll orð eru talsett af Védísi Hervöru Árnadóttur og Felix Bergssyni.
Forritið er fyrir börn frá 4 – 5 ára aldri og hentar langt fram á grunnskólaaldur, eftir eðli mála. Forritið gefur möguleika á að velja léttari æfingar fyrir byrjendur.
Engar auglýsingar. Foreldravörn.

Mikilvægar ábendingar frá Hoppa froski:
Smellið á blikkandi sjónvarp efst uppi til hægri til að heyra söguna í upphafi.

Í fyrstu umferð þarf nemandi að klára öll borðin í hverju hljóði og fá 4 stjörnur. Annars hoppar Hoppi ekki áfram. Svo æfir barnið hljóðin í röð. Þannig opnast á öll hljóðin síðar og nemandi getur valið hljóð af handahófi. Markmiðið er að þjálfa ákveðin hljóð fyrst og gera þetta með stigvaxandi þyngd.

Málhljóðin í Froskaleiknum eru æfð í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á:

1) Hljóðavitund. Kynning á bókstaf, hljóði og fingrastafrófi. Fyrirmynd fyrir hljóðið kynnt með vísan í heyrn- sjónrænt minni með lítilli sögu fyrir hvert hljóð

2) Hljóðatenging og umskráning: lítill/stór stafur. Bókstafur tengdur við hljóðið sem sýnt er með vísan í táknmynd þess. Umskráning æfð sem mikilvæg er til undirbúnings lestrarferlinu. Stjörnugjöf og stika sem sýnir hversu langt þú ert komin/n í leiknum

3) Hljóðgreining. Hljóð tengt við mynd þar sem tengja þarf rétt hljóð við rétt orð. Stjörnugjöf og stika sem sýnir þér hversu langt þú ert komin/n í leiknum

4) Hljóðgreining og skrifað orð, nefnuhraði > að þekkja skrifað orð og kalla fram úr orðasafni hljóðrænar upplýsingar. Barnið smellir á skrifuðu orðin til að heyra heiti þeirra, hlustar vel á orðin og velur rétta hljóðamynd fyrir hljóðið. Smám saman tileinkar barnið sér ákveðna sjálfvirkni í að lesa ritháttarmyndina fyrir orðið og tengir við hljóðkerfisvitundina

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:
Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka.

Styrkir vegna þróunar Froskaleikja Hoppa: Þróunarsjóður námsgagna, Barnavinafélagið Sumargjöf og Barnamenningarsjóður

새로운 기능

버전 2.0

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

iOS 10 update

앱이 수집하는 개인정보

Raddlist 개발자가 개인정보 처리방침 및 데이터 처리 방식에 관한 세부사항을 Apple에 제공하지 않았습니다. 자세한 내용은 개발자의 개인정보 처리방침을 참조하십시오.

세부사항이 제공되지 않음

개발자가 다음번에 앱 업데이트를 제출할 때 개인정보 보호 세부사항을 제공해야 합니다.

이 개발자의 앱 더 보기

Froskaleikur 2 - Listin að lesa
교육
Lærum og leikum með hljóðin - Allt efnið
교육
Froskaleikur 1 - Listin að lesa
교육
FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
교육
Lærum og leikum með hljóðin -D
교육
Íslenski málhljóðamælirinn
교육

좋아할 만한 다른 항목

Kennsluappið
교육
Georg og leikirnir
교육
Georg og félagar
교육
Lestrarapp
교육
Evolytes
교육
Stafarugl Snjallkennslu
교육