Lærum og leikum með hljóðin -D

教育

$30.00 · App內購買 · 專為 iPad 設計。尚未針對 macOS 驗證。

D bókstafurinn og hljóðið hans er kennt á lifandi og skemmtilegan hátt með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður D - hljóðsins kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla. Ef þú ætlar að kaupa smáforritið með ölllum hljóðunum velur þú Lærum og leikum með hljóðin - ALLT. Auðveldar allar seinni uppfærslur. Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT, er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir læsi. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Fjöldi erlendra viðurkenninga frá fagaðilum og foreldrum hafa verið veittar m.a. á BETT2016 sem eitt af sex bestu forritum í menntun og viðurkenning veitt hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum. Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni. Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2. Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings. Lærum og leikum með hljóðin ALLT inniheldur: - Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir - Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur - 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið - Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega - Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni - Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina - Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð - Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði - Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum - Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða - R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins) - Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem myndir koma á víxl til frekari æfinga - Hrós veitt reglulega í forritinu - Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta - Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang - Stigagjöf inni í forritinu - Árangur sýndur í % - Skráning athugasemda inni í forritinu - Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti - Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print) - Vistun með dropbox Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna: Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013). Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015). Frekari upplýsingar: http.www.youtube/laerumogleikum www. laerumogleikum.is www. kidssoundlab.com

  • 此 App 尚未收到足夠的評分或評論,無法顯示概覽。

This update from Apple will improve the functionality of this app. No new features are included. Við erum alltaf á tánum að bæta virknina hjá okkur. Við fengum nýlega 5 stjörnu viðurkenningu frá Educational App Store með lofsamlegum ummælum frá fagnefndinni þeirra og auðvitað erum við ennþá í skýjunum með Bett 2016 viðurkenninguna og val um að vera eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti með okkur. Góðar stundir í að læra og leika!

開發者Raddlist尚未提供關於其隱私權實務和資料處理的詳細資訊給 Apple。如需更多資訊,請參閱 開發者的隱私權政策

  • 未提供詳細資訊

    開發者送出下一個 App 更新項目時需要提供隱私權詳細資訊。

    開發者尚未表示此 App 支援的輔助使用功能。 進一步瞭解

    供應商
    • Raddlist ehf
    大小
    • 452.4 MB
    類別
    • 教育
    相容性
    需要 iOS 8.0 或以上版本。
    • iPhone
      需要 iOS 8.0 或以上版本。
    • iPad
      需要 iPadOS 8.0 或以上版本。
    • iPod touch
      需要 iOS 8.0 或以上版本。
    • Mac
      需要 macOS 11.0(或以上版本)以及配備 Apple M1(或以上版本)晶片的 Mac。
    語言
    • 英文
    年齡分級
    4+
    App內購買
    • The M Sound $120.00
    • B Sound $120.00
    • Complete content $290.00
    • The Vowels $120.00
    • The HN Sound $120.00
    • The Soft G Sound $120.00
    • The R Sound $190.00
    • The S Sound $120.00
    • The Þ Sound $120.00
    • The Ð Sound $120.00
    版權
    • © Raddlist ehf